Sjóminjasafnið
á Eyrarbakka
 
 English
Heimasíða
Um safnið
Á döfinni
Sýningar
Þuríðarbúð
Tengingar
Fyrirspurnir
© Árborg

Hönnun: Vefur.is
 
Sjóminjasafnið


"BÚSSA"

Þann 31. júlí opnaði Sjóminjasafnið á Eyrarbakka sýningu með ljósmyndakonunni Völu Dóru. Nefndist sýningin "Bússa" og stóð hún til ágústloka. Þar voru til sýnis og sölu 10 svart-hvítar manna- og landslagsmyndir, sem teknar eru á og við Eyrarbakka. Uppsetning sýningarinnar var óhefðbundin, þar sem notast var m.a. við þríhyrningsmót úr tré (hluti af siglingarmerki í fullri stærð), og á þann hátt blandaði safnið sér í sýningu Völu Dóru. Þannig vildi safnið minna á sjálft sig og umhverfi.

Vala Dóra er fædd árið 1974 og ólst upp á Eyrarbakka. Hún útskrifaðist frá ljósmyndaskólanum Stevenson College í Edinborg, en einnig sótti hún námskeið í Danmörku. Hún hefur haldið nokkrar einka- og samsýningar síðan 1996, m.a. í Traverse Theatre í Edinborg, North Ayrshire Museum, Saltcoats á Skotlandi og í Akademie-Gallerie í München. "Bússa" er þó ekki fyrsta sýning Völu Dóru á Eyrarbakka en hún hélt einkasýningu í félagsheimilinu Stað í maí árið 1997.

Bússa merkir, skv. orðabók Menningarsjóðs (1978), t.d stórt skip, skúta, feitlagin kona og/eða klofstígvél. En við aðalhöfnina á Eyrarbakka, Einarshöfn, liggja þó tvö brimsund, er mynda þríhyrnda stefnu eins og kort sýna, þar sem annað ber nafnið Bússa, og er það vestanmegin við Einarshafnarsundið. Skv. "Sögu Eyrarbakka", eftir Vigfús Guðmundson, voru víð og stutt skip kölluð bússa og virðist sundið hafa fengið nafngiftina þaðan. Skipstjórnarmenn þurftu að velja hagstæðara sundið eftir því hvernig viðraði, aðallega þegar vindur var hægur af suðri eða suðvestri. Nutu þeir aðstoðar kennileita í landi og siglingarmerkja.

En hvað átti þetta erindi við ljósmyndasýninguna? Þó hafnleysa væri mikil við Eyrarbakka þá voru sundin inn í Einarshöfn forsenda fyrir komu innlendra sem erlendra skipa til Eyrarbakka, og sáu þar með fyrir blómlegri verslun og menningarlífi. Ekki er lengur siglt um Bússu eða Einarshafnarsund en siglingaleiðin er vandlega kortlögð og siglingamerkin á sínum stað vestan við bryggjuna, sem nú er minjar einar. Sýnd voru kort og ljósmyndir af Bússu í uppsetningunni og á þann hátt var menning Sjóminjasafnsins í samræðu við myndir Völu Dóru. Þær eru sprottnar úr menningu nútímans eins og hún birtist á Eyrarbakka.

Opna svæðið og kyrrðin við ströndina fangar hug Völu Dóru, melgresið og sandurinn, jafnframt örlög og möguleikar kynslóða sem lifðu og gera enn í sátt og samlyndi við náttúruna og söguna á Eyrarbakka. Þríhyrningsformið á sýningunni var tákn fyrir menninguna, náttúruna og hinn dyntótta en guðlega kraft sem gerir það allt mögulegt en í einni svipan forgengilegt.



Heimasíða | Um safnið | Á döfinni | Sýningar | Þuríðarbúð | Tengingar | Fyrirspurnir