|
|
|

Fyrirlestraröðin "Byggð og menning"
Nóvemberfyrirlestrarröðin "Byggð og menning", sem er samstarfsverkefni
Sjóminjasafnsins á Eyrarbakka, Byggðasafns Árnesinga og
ReykjavíkurAkademíunnar, hóf göngu sína í annað sinn fimmtudaginn 16.
nóvember. Allir fyrirlestrarnir voru fluttir í borðstofu Hússins á
Eyrarbakka.
Markmiðið með fyrirlestrarröðinni er sem fyrr að styðja við þá þróun að færa
fræðin og umræðuna um þau inn á breiðari og opnari vettvang, þannig að efnið
höfði til sem flestra. Fyrirlestrarnir voru almennt vel sóttir í fyrra og
líflegar umræður fóru fram að þeim loknum. Og það sama má segja um
fyrirlestrana í ár, og ljóst að fyrirlestrarröðin þrífst ekki síður á hinum
skemmtilegu og gagnlegu umræðum eftir erindin eins og á erindunum sjálfum.
· Fimmtudagurinn 16. nóvember:
"Tíðarandi brennualdar"
Ólína Þorvarðardóttir
Fyrsti fyrirlesarinn í ár var Ólína Þorvarðardóttir sem flutti fyrirlestur
um tíðaranda brennualdar. Ólína varði nýlega doktorsritgerð við
heimspekideild Háskóla Íslands sem heitir "Brennuöldin. Galdur og galdratrú
í málskjölum og munnmælum." Reykjavík 2000.
Rannsóknir Ólínu eru á mörkum bókmenntafræði, þjóðfræði og menningarsögu og
byggja jafnt á skjallegum heimildum sem og munnmælum og alþýðutrú. Hún er
doktor í þjóðfræði og bókmenntum frá Háskóla Íslands árið 2000. Ólína hefur
ritað fjölda fræðigreina í fagtímarit og einnig í blöð og almenn tímarit.
Hún er einnig stundakennari við HÍ. Meðal umfjöllunarefna í greinum Ólínu
eru galdur og galdratrú, munnmæli og sagnir og heiðinn átrúnaður
|
|
· Sunnudagurinn 19. nóvember:
JARÐSKJÁLFTAR Í HÚSINU Á EYRARBAKKA!
"Áhrif jarðskjálfta á samfélagið"
Ragnar Sigbjörnsson
Annar fyrirlestur "Byggðar og menningar" fjallaði um jarðskjálfta og áhrif
þeirra á samfélag okkar. Jarðskjálftarnir á Suðurlandi frá því í sumar eru
auðvitað ennþá í fersku minni fólks og fjallaði Ragnar Sigbjörnsson um þá
bæði í sögulegu og samfélagslegu ljósi. Ragnar kemur frá Rannsóknarmiðstöð
í jarðskjálftaverkfræði, en miðstöðin heyrir undir verkfræðideild Háskóla
Íslands, þar sem Ragnar er prófessor, en er staðsett á Selfossi. Markmið
hennar er að rannsaka áhrif jarðskjálfta á mannvirki. Ragnar er prófessor
við verkfræðideild Háskóla Íslands og meginrannsóknasvið hans er
jarðskjálftaverkfræði og öryggismál
Í fyrirlestri Ragnars var í stuttu máli rakinn “jarðskjálftaannáll”
Suðurlands og þau áhrif sem jarðskjálftar hafa haft á Árborgarsvæðinu á
undangengnum öldum. Því næst var fjallað um jarðskjálfta og þau áhrif sem
þeir hafa á nútímasamfélag. Áhrifunum er skipt í félagslega, eðlislæga og
efnahagslega þætti. Nokkur grein var gerð fyrir þeim og vikið að því með
hvaða ráðum hægt er að milda áhrifin. Þá var gefið stutt yfirlit yfir
jarðskjálftana síðastliðið sumar og fjallað um eðli þeirra og áhrif. Að
lokum var vikið að þróun og stöðu þekkingar á eðli og áhrifum jarðskjálfta
hér á landi ásamt því hvort tiltæk þekking hafi verið nýtt sem skyldi.
|
|
|
· Fimmtudagurinn 23. nóvember:
ÁLFAR OG MENN Í HÚSINU Á EYRARBAKKA!
"Sambúð álfa og manna"
Valdimar Tr. Hafstein
Þriðji fyrirlestur "Byggðar og menningar" var fluttur af Valdimar Tr.
Hafstein. Valdimar er þjóðfræðingur, lauk MA-prófi 1999 frá University of
California,
Berkeley, og er nú í doktorsnámi í þjóðfræði og menningarfræði í sama skóla.
Hann rannsakar m.a. hugmyndasögu þjóðfræðinnar, uppboð á erfðaefni á
veraldarvefnum, huldufólkstrú í samtímanum og grænlenskar sagnir af
samskiptum við norræna menn á miðöldum.
Valdimar hefur birt greinar hérlendis og erlendis um þjóðfræðileg efni m.a.
um þjóðtrú í samtímanum, álfatrú og vegagerð o.fl.
|
|
|
· Fimmtudagurinn 30. nóvember:
HEIÐNI OG KRISTNI Í HÚSINU Á EYRARBAKKA!
"Mörk heiðni og kristni"
Steinunn Kristjánsdóttir
Steinunn er fornleifafræðingur og vinnur að doktorsritgerð í Gautaborg og
Osló, sem er hluti af stóru evrópsku samstarfsverkefni í fornleifafræði.
Steinunn hefur sinnt rannsóknum um margra ára skeið og var forstöðumaður
Minjasafns Austurlands.
Steinunn hefur verið verkefnisstjóri fornleifarannsóknarinnar "Mörk heiðni
og kristni" frá 1997. Helstu verkefni innan hennar eru: Uppgröftur á
kirkjurúst í landi Litla-Bakka í Hróarstungu 1997. Uppgröftur á kirkju- og
grafreit í landi Þórarinsstaða í Seyðisfirði 1998-1999. Rannsóknarverkefnið
felur í sér fornleifafræðilega könnun á heiðnum og kristnum minjum frá
fyrstu öldum byggðar á Íslandi. Markmið rannsóknarinnar er að móta
heilsteypta mynd af trúarbragðaskiptum Íslendinga með hliðsjón af
fornleifafræðilegum upplýsingum.
|
|
|
Vefur ReykjavíkurAkademíunnar er: www.akademia.is
|