|
![]()
Viðburðadagskrá fyrir Eyrarbakka,
nóvember og desember 2000 Strandarmenning í Árborg Sunnudagurinn 12. nóvember: Sunnlenskt handverk. Handverksmarkaður og kaffisala í félagsheimilinu Stað á Eyrarbakka. Opið frá kl. 13-18. Fimmtudagurinn 16. nóvember: Byggð og menning. Fyrirlestur I í nóvemberfyrirlestrarröð Byggðasafns Árnesinga og Sjóminjasafnsins á Eyrarbakka. Hefst kl. 20.30 í Byggðasafni Árnesinga, Húsinu. Sunnudagurinn 19. nóvember: Byggð og menning. Fyrirlestur II í Húsinu á Eyrarbakka. Hefst kl. 15.00. Fimmtudagurinn 23. nóvember: Byggð og menning. Fyrirlestur III í Húsinu á Eyrarbakka. Hefst kl. 20.30. Laugardagurinn 25. nóvember: Jólabasar Kvenfélags Eyrarbakka í félagsheimilinu Stað á Eyrarbakka frá kl. 14-18. Á staðnum verður kaffisala og tombóla. Fimmtudagurinn 30. nóvember: Byggð og menning. Fyrirlestur IV í Húsinu á Eyrarbakka. Hefst kl. 20.30. Laugardagurinn 2. desember: Jólasýningar safnanna á Eyrarbakka. Í Sjóminjasafninu hefst ljósmyndasýningin "Í landi…". Í Húsinu hefst "Jólasýning Byggðasafns Árnesinga". Sýningarnar eru samstarfsverkefni safnanna og opnar frá kl. 14-17. Sunnudagurinn 3. desember: Jólasýningar safnanna á Eyrarbakka. "Í landi…" í Sjóminjasafninu og "Jólasýning Byggðasafns Árnesinga" í Húsinu. Opið frá kl. 14-17. Rithöfundar lesa úr nýútgefnum bókum í Húsinu kl. 16. Sunnlenskt handverk. Handverksmarkaður og kaffisala í félagsheimilinu Stað á Eyrarbakka. Opið frá kl. 13-18. Mikil jólastemning. Laugardagurinn 9. desember: Jólasýningar safnanna á Eyrarbakka. "Í landi…" í Sjóminjasafninu og "Jólasýning Byggðasafns Árnesinga" í Húsinu. Opið frá kl. 14-17. Jólahlaðborð. Jólahlaðborð á vegum Kaffi Lefolii í félagsheimilinu Stað á Eyrarbakka frá kl. 20. Hægt er að panta borð nú þegar í síma 861-8110. Sunnudagurinn 10. desember: Kveikt á jólatré. Jólasveinarnir kveikja á jólatrénu við Álfstétt á Eyrarbakka. Jólasýningar safnanna á Eyrarbakka. "Í landi…" í Sjóminjasafninu og "Jólasýning Byggðasafns Árnesinga" í Húsinu. Opið frá kl. 14-17. Rithöfundar lesa úr nýútgefnum bókum í Húsinu kl. 15. Fimmtudagurinn 14. desember: Aðventukvöld og afmæli. Aðventukvöld í Eyrarbakkakirkju. Ennfremur verður 110 ára vígsluafmæli kirkjunnar minnst. Laugardagurinn 16. desember: Jólasýningar safnanna á Eyrarbakka. "Í landi…" í Sjóminjasafninu og "Jólasýning Byggðasafns Árnesinga" í Húsinu. Opið frá kl. 14-17. Jólahlaðborð. Jólahlaðborð á vegum Kaffi Lefolii í félagsheimilinu Stað á Eyrarbakka frá kl. 20. Hægt er að panta borð nú þegar í síma 861-8110. Sunnudagurinn 17. desember: Jólasýningar safnanna á Eyrarbakka. "Í landi…" í Sjóminjasafninu og "Jólasýning Byggðasafns Árnesinga" í Húsinu. Opið frá kl. 14-17. Rithöfundar lesa úr nýútgefnum bókum í Húsinu kl. 15. Sunnlenskt handverk. Handverksmarkaður og kaffisala í félagsheimilinu Stað á Eyrarbakka. Opið frá kl. 13-18. Mikil jólastemning og aðeins nokkrir dagar til jóla. Fimmtudagurinn 28. desember: Jólasýningar safnanna á Eyrarbakka. "Í landi…" í Sjóminjasafninu og "Jólasýning Byggðasafns Árnesinga" í Húsinu. Opið frá kl. 14-17. Lokasýningardagur. |