|
![]() Þuríðarbúð var reist af Stokkseyringafélaginu í Reykjavík árið 1949 til minningar um Þuríði Einarsdóttur formann og horfna starfshætti.
Þuríður Einarsdóttir formaður var fædd árið 1777, dáin 1863. Hún fór í sinn fyrsta róður ellefu ára
gömul á bát föður síns en 17 ára varð hún háseti upp á fullan hlut hjá bróður sínum. Síðan stundaði
hún sjósókn í rúma hálfa öld eða til 1843 en þá hætti hún sjómennsku sökum heilsubrests. Mestan þann
tíma var hún formaður á bátum. Þótti hún góður formaður, útsjónarsöm, varkár en samt áræðin og vinsæl
meðal háseta. Einstakt þótti að kona væri formaður á bát. Hún klæddist karlmannsfötum að jafnaði
vegna sjómennskunnar en til þess þurfti leyfi sýslumanns.
Á Stokkseyri skiptu sjóbúðir eins og Þuríðarbúð tugum á seinni hluta 19. aldar. Þær voru hlaðnar úr
torfi og grjóti. Bálkar voru meðfram veggjum og í þeim sváfu tveir og tveir saman og voru þeir kallaðir
lagsmenn. Sjóbúðirnar voru allt í senn; svefnskáli, matstofa og dagstofa vermanna. Boðið er upp á 15
mínútna leiklestur um æfi Þuríðar fyrir hópa, nánari upplýsingar og pantanir í síma 483 1550.Sjá einnig: Söfnin á Suðurströndinni á vef Hússins á Eyrabakka. |