Dagbók D-listans á Suðurlandi

7. maí
Fjölskylduhátíð
Í dag kl: 18:00 verður fjölskylduhátíð við kosningamiðstöðina á Selfossi. Hljómsveitirnar Land og synir og O.fl. spila, frambjóðendur grilla og gefa ís, blöðrur, andlitsmálning og margt fleira.

5. maí
Kosningamiðstöðin á Selfossi
Í dag var boðið upp á vöfflur og fleira á kosningamiðstöðinni á Selfossi. Margir litu við í kaffi til þess að spjalla um kosningarnar. Næstu daga verða heitar vöfflur á boðstólunum á Austurveginum fyrir gesti og gangandi.

4. maí
Opnir fundir
Opnir fundir voru í kvöld í Þykkvabæ og í Aratungu. Andinn var góður í fundarmönnum og Sjálfstæðismenn stórhuga í kjördæminu.

1. maí
Frambjóðendur á ferð og flugi
Í dag voru frambjóðendur á flakki í Vestmannaeyjum og í kvöld var sælkerakvöld haldið í Ásgarði. Fjöldi fólks mætti og tók þátt í gleði fram á nótt með Sjálfstæðismönnum.

30. apríl
Kosningaskrifstofa á Hvolsvelli
Kosningaskrifstofa var opnuð á Hvolsvelli í kvöld með pompi og prakt. Mikill fjöldi heimsótti skrifstofuna og skemmti fólk sér frábærlega.

30. apríl
Kvennakvöld
Kvennakvöld var haldið í Óðinsvéum í kvöld. Húsið fyllti fjöldi kvenna á öllum aldri. Stemmningin var frábær, söngur, upplestur, ávörp og línudans var meðal annars til skemmtunar.

30. apríl
Vinnustaðafundir
Í dag fóru allir frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi í rútuferð um Árborgarsvæðið. Heimsótt voru fyrirtæki á Selfossi, í Þorlákshöfn og Hveragerði. Fjöldi fólks varð á vegi frambjóðenda í góðu veðri og vakti hópurinn mikla athygli.

29. apríl
Borgarafundir
Fjölmennur borgarafundur var í Duggunni í Þorlákshöfn í kvöld. Þar voru frambjóðendurnir Árni Johnsen og Kjartan Ólafsson með kjósendum og svöruðu fyrirspurnum. Einnig funduðu Drífa Hjartardóttir og Ólafur Björnsson með kjósendum á Laugarvatni.

28. apríl
Borgarafundir
Í dag heimsóttu frambjóðendur fyrirtæki á Hellu og á Hvolsvelli. Í kvöld voru svo opnir fundir á Hvolsvelli og á Stokkseyri.

27. apríl
Borgarafundir
Frambjóðendur voru víða á fundum og í heimsóknum í dag. Drífa Hjartardóttir sat fund með félagi eldri borgara í Mörkinni fyrir hönd D-listans. Í kvöld funduðu svo frambjóðendur með kjósendum í uppsveitum Árnessýslu, bæði í Árnesi og í Hestakránni á Skeiðum.

26. apríl
Borgarafundir
Tveir borgarafundir voru í kvöld, í Hveragerði og í Vík í Mýrdal. Fundirnir voru vel sóttir og voru umræðurnar mjög góðar. Fólki í kjördæminu er tíðrætt um byggðamál og samgöngumál.

24. apríl
Óvissuferð
Í dag fjölmenntu ungir sjálfstæðismenn af öllu Suðurlandi í óvissuferð um kjördæmið. Lagt var af stað frá Selfossi um tvöleytið og haldið að tilraunabúinu að Stóra-Ármóti. Þar var fjósið skoðað, smakkað á spenvolgri mjólk og allir fengu sinn skerf af fjósalykt!! Eftir það var keyrt niður með ströndinni og stoppað í Stokkseyrarfjöru þar sem keppt var í sandkastalabyggingum. Byggingin sem sigraði hét "Góðærið" og munu birtast myndir af öllum sköpunarverkunum í blaði ungra sem kemur út um næstu helgi. Eftir fjöruna var rúntað aðeins um Ölfusið, sungið og spilað á gítar, og svo endað í skoðunarferð um gróðurhúsið í Hlöðutúni þar sem bóndinn, Kjartan Ólafsson fór fyrir flokknum. Að lokum grilluðu svo frambjóðendurnir pylsur ofan í svangann hópinn að ferð lokinni.

24. apríl
Óvissuferð
Óvissuferð ungra sjálfstæðismanna á Suðurlandi. Lagt verður af stað kl: 14:00 frá Austurvegi 38. Allir velkomnir!!!

23. apríl
Útvarpsþáttur
Í dag sendu ungir sjálfstæðismenn út þátt í útvarpi Suðurlands. Þar var rabbað um það sem framundan er hjá sjálfstæðismönnum, stjórnmálaviðhorfið og spiluð létt tónlist.

20. apríl
Opinn fundur á Hellu
Geir H. Haarde var gestur opins fundar í Laufafelli á Hellu í kvöld. Fundurinn hófst kl: 21:00 og var nokkuð vel mætt á fundinn. Geir H. Haarde, fjármálaráðherra, verður með annan fund sinn í Suðurlandskjördæmi í Tunguseli í Skaftártungum miðvikudagskvöld kl. 21:00.

19. apríl
Opinn fundur á Flúðum
Frambjóðendurnir Árni Johnsen, Drífa Hjartardóttir og Kjartan Ólafsson héldu opinn fund í félagsheimilinu á Flúðum í kvöld. Hreppafólk var mætt á fundinn og tók þátt í líflegri umræðu.

18. apríl
Fundur með Davíð Oddsyni á Selfossi
Í dag var haldinn opinn fundur með Davíð Oddssyni, forsætisráðherra, í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Fundurinn hófst klukkan 15:00 og var fjöldi fólks mætt á staðinn. Davíð hélt framsögu um stjórnmálaviðhorfið á Íslandi og ræddi um kosningabaráttuna og kosningamálin. Honum var fagnað vel í lok fundar. Að loknum fundi þáði Davíð og kona hans, frú Ástríður Thorarensen, kaffi í Óðinsvéum ásamt gestum fundarins, þar sem umræðan hélt áfram á léttum nótum.

17. apríl
Kvöldvaka ungra
Hersir, félag ungra sjálfstæðismanna í Árnessýslu stóð fyrir kvöldvöku á Selfossi í kvöld. Þátttaka var frábær, nálægt því að vera meiri en húsrúm leyfði, en húsið fylltu næstum 100 ungir sjálfstæðismenn. Skemmtiatriðin voru öll heimatilbúin og vöktu mikla lukku. Útfærsla Rauðhettu í leikstjórn Kjartans Ólafssonar, leikir, happdrætti og fjöldasöngur undir stjórn Árna Johnsen, fór vel í mannskapinn og skapaði frábæra stemmningu.

17. apríl
Fundur með Davíð Oddsyni í Eyjum
Í dag var fundur með Davíð Oddssyni í félagsheimilinu í Vestmannaeyjum. Á fundinum var fjöldi fólks sem hlýddi á framsögu formannsins um stjórnmálaviðhorfið. Nokkrar umræður sköpuðust í kjölfar framsögunnar og tóku frambjóðendur listans, þeir Árni Johnsen og Kjartan Ólafsson, þátt í þeim.

13. apríl
Fundur á Kaffi Lefolii
Þriðjudagskvöldið 13. apríl voru þau Árni, Drífa og Kjartan á fundi á Eyrarbakka. Fundurinn var haldinn á Kaffi Lefolii og var góð mæting af fólki frá Eyrarbakka og Stokkseyri. Rætt var um ýmis málefni og ríkti góður andi á fundinum.

10. apríl
Fundur með ungu fólki um menntamál
Á laugardaginn fóru frambjóðendur flokksins ásamt stórum hópi ungra sjálfstæðismanna til Vestmannaeyja. Þar stóð félag ungra Vestmannaeyinga fyrir fundi um menntamál. Gestir fundarins voru Björn Bjarnason, menntamálaráðherra, Sigurður Sigursveinsson skólameistari FSu, Ólafur H. Sigurjónsson skólameistari FVe og fulltrúi frá Háskólasetrinu í Vestmannaeyjum. Á fundinum var mikil og góð umræða um menntamöguleika í Suðurlandskjördæmi og framtíðarsýnina í þessum málaflokki. Að loknum fundi fóru Eyverjar með allann hópinn í kynnisferð um eyjuna. Þar var sprangan skoðuð og ungir sjálfstæðismenn í Eyjum sýndu færni sína þar, þá var Fiska- og náttúrugripasafn Vestmannaeyja skoðað og svo var kvöldið endað með varðeldi á Skansinum þar sem sungið var og spilað.

8. apríl
Útvarpsfundur rásar 1
Rás 1 stendur fyrir framboðsfundi á Hótel Örk klukkan 20:00 þar sem fulltrúar allra flokka flytja framsöguerindi og svara fyrirspurnum stjórnenda og einnig fyrirspurnum úr sal. Húsið er opið öllum og hvetjum við fólk til þess að mæta og taka þátt í umræðunum.

30. mars
Frambjóðendur á ferð í V-skaftafellssýslu
Árni, Drífa og Kjartan voru á ferðinni á Kirkjubæjarklaustri og í Vík þar sem þau heimsóttu bændur og fyrirtæki á svæðinu. Einnig voru þau á fundi í Tunguseli í Skaftárhreppi um fyrirhleðslumál. Um kvöldið sátu þau borgarafund í Vík þar sem einkum atvinnumál hreppsins voru rædd.

26. mars
Árni, Drífa og Kjartan í pottinum!
Frambjóðendur voru á ferðinni á Selfossi í dag og byrjuðu daginn með því að fara í Sundhöll Selfoss klukkan 7:30 og heilsa upp á sundlaugargesti. Þar var að venju margt skrafað og þjóðmálin rædd. Eftir baðið heimsóttu frambjóðendurnir Selfyssinga við vinnu og á förnum vegi og ræddu þau mál sem brenna mest á sunnlendingum.

21. mars
Sjálfstæðismenn sigurvegarar í knattspyrnu
Á árlegri firmakeppni knattspyrnudeildar Selfoss leiddu saman hesta sína knattspyrnulið framboðslistanna sem bjóða fram á Suðurlandi. Aðeins tvö lið mættu til keppni, lið B-listans og D-listans. Lið framsóknarmanna var skipað 4 frískum karlmönnum og Sjálfstæðismenn tefldu fram þeim Árna Johnsen, Kjartani Ólafssyni, Kjartani Björnssyni og Drífu Hjartardóttur. Búningur Drífu vakti mikla athygli, en hún keppti í drakt og fótboltaskóm. Hún hafði í upphafi ætlað sér að vera klappstýra en fékk svo lánaða skó og dreif sig inná. Sjálfstæðismenn sigruðu leikinn með glæsibrag og einnig vítaspyrnukeppnina sem haldin var í lokin. Það er spurning hvort úrslitin gefi eitthvað til kynna um úrslit kosninganna í maí, en það verður tíminn að leiða í ljós.

11.-14. mars
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
Glæsilegum landsfundi Sjálfstæðisflokksins er nú lokið. Davíð Oddsson var endurkjörinn formaður og Geir H. Haarde kjörinn varaformaður. Í miðstjórn var kjörinn einn fulltrúi Suðurlands, Guðjón Hjörleifsson frá Vestmannaeyjum. Nánari upplýsingar um landsfundinn og niðurstöður hans er að finna á aðalvef Sjálfstæðisflokksins.